Stóra myndin

Stóramyndin

Hlaðvarp um sögu, heimspeki, pólitík og mannlegt eðli í bland við nútímann.

Um þáttinn


Nýir þættir reglulega

Þættirnir hafa ekki fasta lengd, hún getur rokkað frá undir klukkutíma í yfir tvo tíma. Allt eftir því hversu miklu stuði menn eru í.

Enn eitt hlaðvarpið, er ekki offramboð? Flest hlaðvörp fjalla um málefni líðandi stundar, við viljum þysja út og horfa á stóru myndina. Tengja nútímann við söguna, heimspekina og mannlegt eðli.

Við erum tveir umsjónarmenn hlaðvarpsins, en eftir því sem á líður munum við fá góða gesti til að ræða valin málefni.

Þema hlaðvarpsins


Nærmynd úr málverkinu: SagaI

Saga

Við munum setja nútímann í sögulegt samhengi.

Nærmynd úr málverkinu: HeimspekiII

Heimspeki

Stóru hugmyndirnar og gangur lífsins.

Nærmynd úr málverkinu: Mannlegt eðliIII

Mannlegt eðli

Undirstaða alls, sannleiksleitin byrjar hér.

Nærmynd úr málverkinu: PólitíkIV

Pólitík

Er eitthvað nýtt undir sólinni eða förum við í hringi?

Þættir


Þáttaröð I

Ekkert nýtt undir sólinni

Geta gamlar sögur hjálpað okkur að skilja nútímann? Hver er drifkraftur sögunnar? Endurtekur sagan sig? Er tíðarandinn lifandi fyrirbæri? Við leitum í gamlar og góðar bókmenntir…

29. september 2026

Hermiþrá og René Girard

Hvað er hermiþrá (e. Mimetic Desire)? Hvaðan koma okkar langanir? Hvaða langar þig að langa í? Við ræðum hugmyndir fransk-bandaríska hugsuðarins René Girard um hermiþrá, sem meðal…

29. september 2026

Brauð og leikar

Er síminn orðinn okkar eigið Colosseum? Brauð og leikar er gamalt hugtak úr Rómaveldi sem á enn erindi við nútímann. Þá voru það kornúthlutanir og stórkostlegir leikar. Hvað…

2. október 2026

Tækni fletur sálina

Er tómhyggja og kerfishugsun allsráðandi í samfélaginu? Við ræðum hvað gerist þegar tæki leysa vanda en breyta um leið venjum okkar. Bíllinn kemur okkur hratt á milli staða…

9. október 2026

Andkristur eða ragnarök

Hvað ef við björgum heiminum en missum frelsið? Í þessu sjálfstæða framhaldi af síðasta þætti færum við sjónarhornið frá tækjunum í hversdagslífinu yfir á vinnu, vísindi, öryggi…

15. október 2026

Hægrimenn eru vinstrimenn

Hvað þýðir að vera hægri eða vinstri? Er verið að tala um skatta, eignarrétt og stærð ríkisins - eða fjölskyldu, trú, innflytjendamál, þjóð, kyn, málfrelsi og Evrópusambandið? Í…

22. október 2026

Fjórða lotan - The Fourth Turning

Er sagan bein lína fram á við eða gengur hún í lotum? Geta góðir tímar skapað veikleika, geta samfélög gleymt því sem fyrri kynslóðir lærðu og hvað gerist þegar traust, stofnanir…

5. nóvember 2026

Póstlistinn