Hægrimenn eru vinstrimenn

Hvað þýðir að vera hægri eða vinstri? Er verið að tala um skatta, eignarrétt og stærð ríkisins - eða fjölskyldu, trú, innflytjendamál, þjóð, kyn, málfrelsi og Evrópusambandið?
Í þættinum rekjum við uppruna hugtakanna til frönsku byltingarinnar árið 1789, þegar hægri og vinstri lýstu einfaldlega sætaskipan í þingsal. Síðan skoðum við hvernig merking orðanna hefur færst í meira en tvær aldir og hvers vegna skoðun sem áður þótti frjálslynd eða vinstrisinnuð getur síðar lent hægra megin, án þess að skoðunin sjálf hafi breyst.
Við förum yfir efnahagslega hægri-vinstri ásinn, menningar- og siðferðismál, fullveldi, þjóðernishyggju og alþjóðahyggju, auk annars áss sem skiptir ekki síður máli: frelsi gegn forræði. Maður getur nefnilega verið hægra megin í einu máli og vinstra megin í öðru.
Hvar passa frjálshyggja, klassískt frjálslyndi, íhaldssemi, sósíaldemókratía, popúlismi, fasismi og kommúnismi inn í myndina? Hvað er íhaldssamur frjálshyggjumaður? Hvað er miðjumaður? Og segja hugtökin „hægri“ og „vinstri“ kannski miklu minna um fólk en við höldum?
Við ræðum meðal annars Locke, Rousseau, Burke, Tocqueville, Hayek, Sowell og Bobbio, ásamt frönsku byltingunni, Rómaveldi, norræna velferðarkerfinu, Bandaríkjunum, Sviss og íslenskum stjórnmálum.
Stærsta spurningin er kannski ekki hvort við séum hægra eða vinstra megin heldur hversu mikið vald viljum við afhenda ríkinu.
Umræða
Orðið er laust
Athugasemdir, umsagnir og ábendingar eru vel þegnar. Engin skráning — bara nafn.
Engin umræða enn. Þú mátt eiga fyrsta orðið.