Stóra myndin
Allir þættir

0515. október 2026

Andkristur eða ragnarök

Andkristur eða Ragnarök

Hvað ef við björgum heiminum en missum frelsið? Í þessu sjálfstæða framhaldi af síðasta þætti færum við sjónarhornið frá tækjunum í hversdagslífinu yfir á vinnu, vísindi, öryggi og vald. Peter Thiel lýsir tveimur hættum: Ragnarökum ef sífellt öflugri tækni fer úr böndunum, og Andkristi ef óttinn við hörmungar fær okkur til að afhenda fáum aðilum stjórn á öllum hinum.

Við spyrjum hvort það sé að hægja á framförum í raunheimum á meðan símar, tölvur og gervigreind þróast hratt. Hvað gerist þegar gervigreindin fær hendur og fer að vinna í raunheimum? Getur vél verið meðvituð? Hvar liggja mörkin milli þess að lækna manneskju og „uppfæra“ hana? Og hversu frjálst er valið að hafna nýrri tækni ef vinnan og samfélagið krefjast hennar?

Hvernig verjum við okkur gegn hættulegri tækni án þess að byggja eftirlitsríki sem við getum ekki losnað undan?

Þurfum við að velja milli Ragnaraka og Andkrists? Eða getum við haldið áfram að skapa, byggja og lækna - en um leið sett valdinu mörk?

Umræða