Fjórða lotan - The Fourth Turning

Er sagan bein lína fram á við eða gengur hún í lotum? Geta góðir tímar skapað veikleika, geta samfélög gleymt því sem fyrri kynslóðir lærðu og hvað gerist þegar traust, stofnanir og sameiginleg gildi veikjast á sama tíma?
Í þættinum ræðum við bókina *The Fourth Turning* eftir William Strauss og Neil Howe og kenningu þeirra um að samfélög gangi í gegnum um 80–100 ára kynslóðahringrásir. Hver hringrás skiptist í fjórar lotur: uppbyggingu, vakningu, upplausn og að lokum krísu. Samkvæmt kenningunni stöndum við nú í fjórðu lotunni - vetrinum.
Við skoðum hvernig kynslóðir mótast af þeim heimi sem þær alast upp í og förum yfir spámenn, flakkara, hetjur og listamenn. Baby Boomers, Gen X, Millennials og yngri kynslóðirnar fá þannig ólík hlutverk eftir því hvort þær alast upp við öryggi, uppreisn, upplausn eða krísu. Við spyrjum líka hvort maður sé fastur í sinni kynslóð eða hvort hægt sé að fara gegn straumnum.
Við förum víða um söguna: bronsaldarhrunið, Rómaveldi, siðaskiptin, ensku borgarastyrjöldina, frönsku byltinguna, bandaríska frelsisstríðið, borgarastyrjöldina í Bandaríkjunum og hinar svokölluðu Great Awakenings. Við ræðum líka skuldahringrásir Ray Dalio, hugmyndir Peter Thiel um ákveðna og óákveðna bjartsýni og hvernig hugmyndir og tíðarandi geta magnast upp yfir nokkrar kynslóðir.
Hvernig passar samtíminn inn í þetta? Fjármálahrunið 2008, Trump, Brexit, COVID, menningarstríð, minnkandi traust, skuldir, húsnæðiskreppa, lág fæðingartíðni, Úkraína, Mið-Austurlönd, Kína og Taívan, gervigreind og vaxandi pólitísk skautun.
Er Fjórða lotan raunverulega gagnleg kenning um söguna - eða sjáum við bara mynstur af því að við leitum að þeim? Ef við erum í fjórðu lotunni, hvað eigum við þá sjálf að gera?
Við horfum líka fram á veginn: Hvaða ríki standa efnahagslega tæpast? Hvar gætu skuldir, pólitísk sundrung eða samfélagsleg spenna þróast yfir í alvarlegri krísu? Og hvar er mest hætta á að núverandi átök stigmagnist?
Ef Strauss og Howe hafa rétt fyrir sér er stóra spurningin kannski ekki hvort fjórða lotan endi - heldur hvernig hún endar og hvað tekur við.
Umræða
Orðið er laust
Athugasemdir, umsagnir og ábendingar eru vel þegnar. Engin skráning — bara nafn.
Engin umræða enn. Þú mátt eiga fyrsta orðið.