Ekkert nýtt undir sólinni

Geta gamlar sögur hjálpað okkur að skilja nútímann? Hver er drifkraftur sögunnar? Endurtekur sagan sig? Er tíðarandinn lifandi fyrirbæri?
Við leitum í gamlar og góðar bókmenntir og helstu hugsuði fortíðar. Sem dæmi má nefna Biblíuna, Hómer, Platón, Shakespeare, Dostójevskí, Nietzsche, René Girard og sögu Rómaveldis.
Við ræðum eðli mannsins og skoðum hvernig það hefur áhrif á samfélög og þróun sögunnar. Öfund, metnaður, freistingar, vald, sjálfsblekking og hjarðhegðun, en líka hugrekki, fylgispekt og fyrirgefningu.
Hvernig tengist þetta allt nútímanum, erum við að endurtaka gömul mistök? Samfélagsmiðlar, gervigreind og nútímastofnanir eru ný fyrirbæri, en tæknibreytingar eiga það til að gefa manninum nýjar leiðir til að gera sömu mistökin.
Umræða
Orðið er laust
Athugasemdir, umsagnir og ábendingar eru vel þegnar. Engin skráning — bara nafn.
Engin umræða enn. Þú mátt eiga fyrsta orðið.