Stóra myndin
Allir þættir

0812. nóvember 2026

Sterku guðirnir og brotalamir frjálslyndis

Sterku guðirnir og brotalamir frjálslyndis

Hvað fær okkur til að láta eigin hagsmuni víkja fyrir einhverju stærra en okkur sjálfum? Hvers vegna fórna foreldrar öllu fyrir börnin sín? Hvað heldur þjóð raunverulega saman þegar á reynir? Og hvað gerist þegar við hættum að trúa á nokkurn skapaðan hlut sem krefst af okkur fórn og sjálfsaga?

Í bókinni Return of the Strong Gods notar R. R. Reno hugtakið „sterku guðirnir“ um þau bönd sem binda okkur saman: fjölskylduna, ættjarðarástina, trúna og sannleikann. Reno heldur því fram að skiljanlegur ótti við nýtt ofstæki eftir síðari heimsstyrjöld hafi með tímanum snúist upp í tortryggni gagnvart ættjarðarást, fjölskyldugildum og trú á Guð. Ættjarðarást var æ oftar tengd við þjóðernisofstæki, trú við umburðarleysi og fjölskyldugildi talin hefta frelsi einstaklingsins. En í tilrauninni til að losna við alla áhættu höfum við búið til rótlaust samfélag þar sem ríkið og skrifræðið þenjast út á meðan mannleg tengsl og sjálfsábyrgð molna niður.

Við ræðum hvað tapast þegar siðferðilegum skyldum er skipt út fyrir viðskiptasamninga og þægindi. Við spyrjum hvað það kosti að standa með sannleikanum þegar vinnustaðurinn eða samfélagið kýs frekar þægilega lygi eða galna hugmyndafræði. Jafnframt skoðum við hvers vegna „Síðasti maðurinn“ hjá Nietzsche - sá sem hefur glatað öllum metnaði og neitar að bera ábyrgð, en vill aðeins láta deyfa sig með þægindum, afþreyingu og sársaukaleysi - er orðinn að stærstu ógninni við frelsið í dag.

Að lokum leitum við svara við því hvernig við getum endurvakið tryggðina við fjölskyldu, fósturland og sameiginleg gildi án þess að fela ríkinu vald yfir samvisku fólks.

Umræða